SKIPTUM UM SÍÐU!!!!

Já við grooby stúlkur erum fullkomunistar af verstu gerð og vorum ekki sáttar við þetta kerfi, asnalegt að commenta á því...og þar sem við elskum að commenta á hluti var þetta ekki að virka fyrir okkur! En við erum því komnar með enn eina heimasíðuna

http://grooby.bloggar.is

 

bara svona að láta ykkur vita ;)


hæ bara smá færsla!!

heyrði já ég var nefnilega að spá með þessa síðu! Skohh okei ég er alveg sammála ykkur, það er mest ansalegast og fáranlegast að skrifa athugasemd hérna og bloggar.is er svo helmingi þægilegri og þannig. Þessvegna var ég að spá, ef einhver ykkar getur gert grooby síðu á bloggar.is þá er ég alveg til í að gera hana svo, bara ef þið reddið notendanafninu og passwordinu. Ég ætla ekki einu sinni að reyna það aftur eftir að ég var 2 kvöld hérna að reyna það en þessir kallar voru ekki að nenna að senda mér smsið svo ég gæti haldið áfram!!! En jámm þetta er undir ykkur komið, persónulega held ég að við myndum vera meira aktívari á bloggar.is en þetta er ykkar val!!!

yes, I luv ya all my darlings!!! p.s vil minna ykkur á bíóið á morgunn klukkan 10!!!En samt í hvaða bíói?? Er það smárabíó eða?? Svo vil ég líka minna ykkur sem eigði eftir að borga Söndru fyrir gjöfina (handa Lilju) af fara að borga ;) leiðinlegt ef það dregst!

Kv. Sigga :D:D

 


Vááá hvað þið voruð duglegar..alveg heilt blogg!

já vá alveg heilt blogg sem þið skrifuðuð ámeðan við hinar vorum úti!! Ég bara varð að hrósa ykkur fyrir það, og þetta var líka svo innihaldsmikið blogg:P

En já ég ætla nú ekki að skrifa mikið núna, er að fara að kaupa mér eitthvað að éta. En jámm núna er haustfríið byrjað :D eru þið ekki glaðar með það!!!Ég er búin að gera geðveikt mikið í mínu haustfríi. Ég er búin að SOFA, SOFA, SOFA og svo jámm sofa aðeins meira. Búin að horfa á hálfa bíómynd, 3 þætti og fara í sturtu..ekki veitti nú af :P Svo er ég búin að senda hljómsveitastjóranum mínum sms um að ég geti ekki verið með á æfingum og tónleikum um helgina með einhverjum færeyingum því að ég er að vinna! Ég gat ekki verið að biðja um frí 2 helgar í röð og svo er ég nefnilega að fara að vinna þessa helgi og næstu (næstu svo að ég geti fengið frí þarnæstu helgi því að þá er ég að fara í æfingabúðir með kórnum í Skálholti). So sorrý, ég er bara busy stelpuhnáta.

En ætlar Íris ekki að halda upp á afmælið sitt á mánudaginn?? Svona kózý kvöld. Ég er náttla í tónlistarskólanum til 19.30 en ég get alveg komið eftir það!!!! Hlakka til að sjá ykkur elskurnar mínar og hafa kózý gaman án þess að ég og Elna tölum í stykkorðum vegna flugþreytu og þreytu almennt! :P

P.S. REYNDAR VERÐ ÉG AÐ HRÓSA KRISTÍNU FYRIR AÐ HAFA SETT BENIDORM MYNDIRNAR INN Á...VEL GERT ELSKAN...LILJA NÚ ÁTT ÞÚ EFTIR AÐ GERA ÞETTA..hvað segiru um að rumpa þessu bara af!!!!


TIL HAMINGJU LILJA OKKAR !!!!

 

Hún á afmæli í dag

Hún á afmæli í dag

Hún á afmæli hún Lilja

Hún á afmæli í dag !!!

 

Hún er 18 ára í dag

Hún er 18 ára í dag

Hún er 18 ára hún Lilja

Hún er 18 ára í dag Koss

 

Til hamingju með daginn elska okkar Hlæjandi 

kveðja Grooby Glottandi


ógeðslega eru þið hinar duglegar að blogga!!!!!!

jámm ég ætlaði nú aðallega að kveðja ykkur elskurnar mínar (íris, kristín, lilja og sigrún) því ég, Elna og Sanra ætlum að skella okkur til Svíþjóðar núna í nótt í viku!! Ef þið viljið vera svo elskulegar þá GETIÐI alveg bloggað fyrir okkur á meðan ;) ég meina, það dræpi ykkur ekkert og það eyðileggur ekkert mannspor ykkar!

En já þetta var nú aðallega það sem ég ætlaði að skrifa. En ég skal deila samt fleiru með ykkur, ég er ekkert byrjuð að pakka og ég þarf að mæta klukkan 4.15 upp í skóla í nótt og þessvegna vakna um 3 leytið!!!!! Frá því að við leggjum af stað frá Kvennó og þangað til að við komum til Kalmar eru 12 og hálfur klukkutími (komum þangað 19.10)...PÆLIÐ Í ÞVÍ 12 OG 1/2 KLUKKUTÍMI AÐ FARA TIL SVÍÞJÓÐAR....WHY WHY WHY!!!!!!!??????? hehe en já þetta verður bara hresst, rúta, flugvél, llleeeeesssstttt hehe og rúta! og svo hugsanlega bíll (því við sandra þurfum jú að fara til Öland sem tekur svona 20-30 mín)

 En já núna ætla ég niður og snæða kvöldmat með familíunni...koma svo stelpur, BLOGGA OG GERA ATHUGASEMDIR...sýnið mér að ég sé ekki ein með þessa síðu...að ég sé ekki geðveik og haldi bara að ég eigi vinkonur GlottandiUllandi

Svo sjáumst við bara eftir viku elskurnar mínar Koss

 

 


VORT HONYBUTTER ER 18 ÁRA!!!

,,Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún Íris gella!!! Hún á afmæli í dag.

Hún er 18 ára í dag. Hún er 18 ára í dag hún er átján ára hún íris....hún er 18 ára í dag!!!"

 

já við óskum henni Írisi okkar innilega til hamingju með 18 ára afmælisdaginn. Ég veit ekki hvort hún eigi eftir að sjá þessa færslu í dag, þar sem stúlkan er ekki sú besta í að kíkja á svona síður..en hey! Þessi elska er allavega orðin sjálfráða í dag og bara skrilljón kossar frá okkur (allavega mér) til þín!!!!!

 

 kv. Sigga and the girls Koss


ath!!!

fyrir ykkur sem voruð ekki búnar að taka eftir því þá ef þið klikkið hérna vinstra megin á síðunni efsta á The Girls!!! þá kemur smá texti um okkur...bara svona svo þið vitið það, endilega reynið (þótt það sé flókið) að skrifa í athugasemdir hérna til að segja hvað ykkur finnst!!!

Hæ hæ elskurnar mínar!!!

já ég ákvað að þetta þýddi bara ekki lengur og bjó bara til nýtt blogg handa okkur. Ég, krisín og sigrún reyndum um daginn að búa það til hjá bloggar.is...ENNNN þeir bara sendu okkur aldrei smsið..þannig að ég gafst upp og bjó það til hérna. Þetta er svoltið öðruvísi og tekur tíma að venjast en mér líst samt bara vel á þetta..hefur marga kosti. Svo er bara málið að taka eina snilldar mynd of okkur saman, eða einhver snillí býr til banner og setja það svo hérna upp.

 En já notendanafnið er grooby og passwordið er orð sem sigrún okkar kenndi okkur...ég sendi ykkur það í smsi ;)

 Annars (hehe skrifaði fyrst ananas) verð ég að fara að læra, ákvað að gera þetta núna samt, nennti ekki að fara alltaf inn á gömlu síðuna og sjá TIl HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ hehe...en okei, segið mér hvað ykkur finnst :*

 kv. Sigga

 p.s. ekki hægt að hafa marga notendur hér held ég þannig að við kvittum bara alltaf fyrir blogginu ;)


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband